Reykjavíkurborg samþykkir að hefja framkvæmdir

Til hamingju Reykvíkingar!

Nú hefur Reykjavíkurborg samþykkt að hefja á næsta ári framkvæmdir á Tjarnarbíó.  Sú þrotlausa vinna sem SL hefur lagt í síðastliðin ár er orðin að veruleika.  Eftir að hafa rekið húsnæðið í 13 ár fyrir borgina hefur draumur SL um öfluga sviðslistamiðstöð þar sem boðið verður upp á úrvals leik- og kvikmyndasýningar orðið að veruleika. 

Árið 2003 var unnin stefnumótunar skjal á vegum SL og var eitt af markmiðum félagsins að koma á fót fræðslu- og menningarsetri.  Í kjölfarið var stofnuð húsnæðisnefnd á vegum SL en í henni sátu Felix Bergsson, Vilhjálmur Hjálmarsson ásamt framkvæmdastjóra Kristínu Eysteinsdóttur/Gunnar Gunnsteinsson.  Þessi nefnd fór ofan í kjölinn á þeim möguleikum sem voru í boði og lagði fram tillögu um breytingar á Tjarnarbíó er myndu nýtast starfsemi atvinnuleikhópa betur.  Einnig var ákveðið að samnýta húsæðið með kvikmyndasýningum og hefur verið tekið tillit til þess þáttar við hönnunina.

Það er von SL að í ársbyrjun 2009 muni hið fornfræga hús, Tjarnarbíó opna með bavúr!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært, alveg geggjað, til hamingju öll. Þetta á eftir að poppa enn frekar uppá öflugt starf Sjálfstæðu leikhúsanna.

Elfar Logi Hannesson (IP-tala skráð) 23.11.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband