Tjarnarbíó á framkvæmdaáætlun

Eftir margra ára þrotlausa baráttu SL er Tjarnarbíó loksins komið inn á framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar.  Þetta sögufræga hús mun öðlast fyrri reisn ef ráðist verður í framkvæmdir í lok næsta árs.  Á áætlun er gert ráð fyrir 50 milljónum á næsta ári en til að klára framkvæmdirnar verður að bæta við að lágmarki 100 milljónum. 

Ferli og brunamál eru í miklum ólestri í húsinu enda eru t.d. allir veggir síðan 1940 og úr pappa.  Einnig er slæmt aðgengi fyrir hjólastóla og anddyrið tekur ekki nema um 50-80 manns en salurinn rúmar um 220 áhorfendur.  Því hafa margir gestir þurft að híma úti í kuldanum sem er ekki boðlegt.

Það eru margir fingur krossaðir þessa dagana hjá aðildarfélögum SL sem telja 58 í dag.  Þegar búið verður að klára þær framkvæmdir sem SL hefur lagt til verður Tjarnarbíó öflug sviðslista- og kvikmyndamiðstöð í hjarta borgarinnar.  Hægt er að nálgast teikningar að hugmyndum SL á heimasíðu bandalagsins www.leikhopar.is undir Tjarnarbíó.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband