27.2.2008 | 01:13
Aukasýning á Nosferatu: Í skugga vampírunnar
19.2.2008 | 21:49
MR sýnir - Nosferatu: Í skugga vampírunnar
Leikstjóri er Ólafur S.K. Þorvaldz.
Sýningar verða:
- fös. 22. feb. 2008, kl. 20:00 [Frumsýning]
- þri. 26. feb. 2008, kl. 20:00
- mið. 27. feb. 2008, kl. 20:00
- fim. 28. feb. 2008, kl. 20:00
- fös. 29. feb. 2008, kl. 20:00
Menning og listir | Breytt 22.2.2008 kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2008 | 15:33
Dagskrá Fjalakattarins
Hér er hægt að nálgast upplýsingar um þær myndir sem verða á Fjalakettinum núna í vor: Sunnugadur, 17. feb 17.00 | Joy Division 20.00 | Voleurs de Chevaux 22.00 | Joy Division
|
Mánudagur, 18. feb 17.00 | Voleurs de Chevaux 20.00 | Put Lubenica 22.00 | Voleurs de Chevaux
|
Sunnugadur, 24. feb 15.00 | Put Lubenica 17.00 | Joy Division 20.00 | Yella 22.00 | Put Lubenica
| Mánudagur, 25. feb
17.00 | Menneskenes Land min film om Grønland 20.00 | Requiem 22.00 | Joy Division
|
MARS
Sunnudagur, 2. mars 15.00 | Så som i Himmelen17.00 | Requiem 20.00 | Leinwandfieber 22.00 | Menneskenes Land min film om Grønland
| Mánudagur, 3. mars
17.00 | Yella 20.00 | Menneskenes Land min film om Grønland 22.00 | Requiem
|
| Mánudagur, 10. mars 17.00 | Leinwandfieber 20.00 | Suden vuosi 22.00 | Yella
|
Sunnudagur, 16. mars 15.00 | Ketill + other short nordic films 17.00 | Så som i Himmelen 20.00 | Ketill + other short nordic films 22.00 | Så som i Himmelen
| Mánudagur, 17. mars 15.00 | Leinwandfieber 17.00 | Suden vuosi 20.00 | Så som i Himmelen 22.00 | Suden vuosi
|
Laugardagur, 22. mars 15.00 | Le Dernier Métro 17.30 | La Peau Douce 20.00 | La Femme dà côté 22.00 | Jules et Jim
| Sunnudagur, 23. mars 15.00 | Jules et Jim 17.00 | Les Deux Anglaises et le Continent 20.00 | Le Dernier Métro 22.30 | La Femme dà côté
|
Mánudagur, 24. mars 15.00 | Les Deux Anglaises et le Continent 17.30 | Le Dernier Métro 20.00 | Jules et Jim 22.00 | La Peau Douce |
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2008 | 10:48
Fjalakötturinn
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík endurreisti á síðasta ári kvikmyndaklúbbinn Fjalaköttinn ásamt fagfélögum kvikmyndagerðarmanna og leikara. Fjalakötturinn býður upp á vikulegar sýningar á sunnudögum og mánudögum, í Tjarnarbíói, sem hefjast þann 17. febrúar 2008 og lýkur 24. mars. Sýningartimar eru að jafnaði kl. 15,17, 20 og 22.
Með sýningum á nýjum og spennandi myndum í bland við eldri djásn verður dagskráin eins fjölbreytt og ríkuleg og á síðasta ári. Allt í allt verða 18 kvikmyndir í fjórum meginflokkum sýndar á tímabilinu, auk sératburða. Fjalakötturinn einsetur sér að kynna fyrsta flokks kvikmyndir sem rata ekki endilega inn í hin hefðbundnu kvikmyndahús höfuðborgarsvæðisins.
Erlend djásn (3 myndir)
Þrátt fyrir að sýndar hafi verið hátt í hundrað myndir á kvikmyndahátíðinni 2007 komust fjölmargar kvikmyndir ekki á dagskrá annaðhvort vegna þess að eintökin voru ekki á lausu meðan á hátíðinni stóð eða þá að myndirnar töldust aðeins of gamlar til að vera með í veislunni. Fjalakötturinn tekur til sýninga brot af því besta sem ekki var pláss fyrir á hátíðarborðinu.
Nýjar þýskar kvikmyndir (3 myndir)
Þýsk kvikmyndagerð hefur verið í mikilli uppsveiflu undanfarið og fjöldi áhugaverða nýrra mynda hefur verið á hátíðarrúntinum síðustu ár. Nokkrar þeirra verða sýndar í Fjalakettinum 2008.
Norðurlönd (7 myndir)
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur alltaf ræktað tengslin við frændur okkar á Norðurlöndum. Að þessu sinni sýnir Fjalakötturinn myndir frá Danmörku, Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Íslandi.
Truffaut-helgi (5 myndir)
Francois Truffaut (193284) er einn frægasti kvikmyndaleikstjóri Frakka og frumkvöðull frönsku nýbylgjunnar, sem kennd er við rómantík tímabil og breytta hugmyndafræði. Franska nýbylgjutímabilið er vel þekkt í kvikmyndasögu samtímans og hefur haft mikil áhrif á kvikmyndagerð seinni tíma. Truffaut leikstýrði fyrstu mynd sinni árið 1959, Les 400 coups sem var brautryðjandaverk og aflaði frönsku nýbylgjunni mikillar athygli, bæði í Frakklandi og erlendis. Um páskahelgina sýnir Fjalakötturinn fimm klassískar kvikmyndir eftir franska meistarann.
Allar upplýsingar er að finna á www.fjalakottur.is
2.2.2008 | 10:08
Herranótt og Fjalakötturinn
28.1.2008 | 13:25
Framkvæmdir hefjast 1. apríl
Nú hefur verið tekin ákvörðun um að flýta framkvæmdum á Tjarnarbíó. Húsnæðinu verður lokað 1. apríl 2008 og verður hafist handa við að fjarlægja tæki og gamla muni úr húsnæðinu. Áætlað er að framkvæmdirnar mundu taka 8-12 mánuði. Það verða því mun færri viðburðir í Tjarnarnarbíó en áætlað var. Dagskrá Tjarnarbíós verður birt fljótlega.
23.1.2008 | 09:56
THERE IS A POLICE INSIDE OUR HEADS
Verkið er samvinnuverkefni 14 nemenda úr hönnunar-og arkítektúr-, myndlistar-, tónlistar- og leiklistardeildum Listaháskóla Íslands og varð til á einungis 3mur vikum.
Öll listformin sem kennd eru við Listaháskólann voru höfð að leiðarljósi við sköpun verkins og er því um að ræða skemmtilega blöndu tónlistar, hönnunar, myndlistar, videolistar og performans (leiklistar). Óhefðbundin sýning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.
Miðaverð er aðeins 500 kr.
AÐEINS ÞESSI EINA SÝNING!!!!
12.1.2008 | 11:48
Pam Ann í Tjarnarbíó
Festið sætisólarnar og setjið Gucci og Prada handtöskurnar í farangurshólfið því hin dásamlega töfrandi, glitrandi og frakka flugfreyja fræga fólksins, Pam Ann er að fljúga inn til lendingar í Tjarnarbíói 31. janúar og 1. febrúar í samvinnu við Flugfélag Íslands. Pam Ann er hugarfóstur ástralska grínistans Caroline Reid og hefur ferðast um allan heim fyrir fullu húsi með sýningar sínar. Hún skemmtir reglulega í einkaþotu Elton John og Madonna er mikill aðdáandi og segir hana ,,illkvittnislega fyndna
Klædd í Gucci, Pucci og Fiorucci er Pam Ann dáð um allan heim af flugáhöfnum fyrir að segja allt sem þær dreymir um að láta út úr sér en myndu aldrei þora. Hún fer með ykkur í ótrúlega ferð frá brottför til lendingar eins og henni einni er lagið. Pam tekur á samkeppni á milli flugfélaganna um bestu þjónustuna, fallegustu flugfreyjurnar og best klæddu farþegana. Pam Ann sýnir enga miskunn og farþegar á fyrsta farrými hafa alltaf forgang.
Ekki missa af þessum frábæra skemmtikrafti í fyrsta sinn á Íslandi. Í bígerð er sjónvarpsþáttur um Pam Ann svo víst er að þið munið heyra meira af henni í framtíðinni!
Sýnt í Tjarnarbíó 31. janúar og 1. febrúar kl. 20. Miðsala á www.midi.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes í síma 7701073
Menning og listir | Breytt 22.1.2008 kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2008 | 11:05
Kvikmyndaborgin Reykjavík
SL fagnar því að samþykkt var á fundi borgarráðs Reykjavíkur í gær að efla kvikmyndageirann og starf hans í Reykjavík til muna. Meðal annars með því að efla Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík sem fram til þessa hefur haft aðsetur sitt í Tjarnarbíói.
Þar með leggur borgin enn frekar grunninn að því að gera draum SL, um að gera Tjarnarbíó að leikhús- og kvikmyndamiðstöð í hjarta borgarinnar, að veruleika.
Síðastliðin fjögur ár hefur SL lagt mikla fjármuni og vinnu í að koma upp setri Sjálfstæðu leikhúsanna. Þar sem SL hefur rekið Tjarnarbíó síðastliðin 13 ár lá beinast við að finna leiðir til þess að húsnæðið gæti þjónað betur starfsemi og sviðsverkum sjálfstæðra atvinnuleikhópa. Unnin var ítarleg skýrsla sem hægt er að sjá á heimasíðu SL, www.leikhopar.is, þar sem kynntar eru viðamiklar breytingar á húsnæðinu auk viðbyggingar í porti við hliðina á Tjarnarbíói. Sömuleiðis var í skýrslunni kynnt nýstárlegt rekstrarform þar sem leiksýningar verða í boði samhliða kvikmyndasýningum. Þannig mun Tjarnarbíó hafa sérstöðu í Reykjavík þar sem hægt verður að sjá óhefðbundnar sviðslistasýningar sem og kvikmyndasýningar.
Undir lok síðasta árs samþykkti borgarráð að fara að tillögum SL og hefja framkvæmdir í Tjarnarbíói samkvæmt þeirri undirbúningsvinnu sem unnin hefur verið af SL undangengin fjögur ár. Er þetta mikill áfangasigur fyrir SL og lítum við bjartsýn til framtíðar á að geta stóreflt menningarlífið í miðborg Reykjavíkur.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2008 | 12:34
Lókal og Fjalakötturinn fengu fjárframlög frá Reykjavíkurborg
Menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkur úthlutaði styrkjum síðastliðinn föstudag. Það var ánægjulegt að sjá að Lókal, alþjóðleg leiklistarhátíð hlaut annan stærsta styrkinn að upphæð 2 milljónir króna og Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn hlaut 800.000 kr fyrir starfseminni.
Lókal, alþjóðleg leiklistarhátíð, verður haldin í fyrsta sinn í mars á þessu ári. Lókal er nýmæli á sviði leiklistar í borginni og mun án efa vera þakklát viðbót við þá miklu leiklistarstarfsemi sem fyrir er í landinu. SL mun vinna í samstarfi við Lókal í framtíðinni og stefnt er að því að nýtt og endurbætt Tjarnarbíó verði miðstöð hátíðarinnar þegar húsið opnar eftir framkvæmdir í mars 2009.
Kvikmyndaklúbburinn Fjalakötturinn stendur fyrir reglulegum kvikmyndasýningum í Tjarnarbíói. Markmið klúbbsins er að auka kvikmyndaúrval í Reykjavík með því að bjóða upp á myndir sem eru ekki að jafnaði í kvikmyndahúsum bæjarins. Fjalakötturinn mun hefja sýningar að nýju í Tjarnarbíó í febrúar.
Sem stendur er lítil starfsemi í Tjarnarbíói vegna uppmælingar á húsinu. Vilhjálmur Hjálmarsson arkitekt hjá Teiknistofunni Óðinstorgi hefur umsjón með mælingunum. Þessi uppmæling á Tjarnarbíói er mikilvæg til að heimildir um upphaflegt útlit hússins varðveitist. Er þetta liður í undirbúningi áður en framkvæmdir geta hafist í Tjarnarbíói. SL hlaut fjárveitingu árið 2006 frá Húsafriðunarnefnd til að mælingin gæti átt sér stað auk annars undirbúnings varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir í húsinu.
Tjarnarbíó hefur starfsemi aftur í febrúar meðal annars með kvikmyndasýningum á vegum Kvikmyndaklúbbsins Fjalakattarins eins og áður hefur komið fram.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)