18.4.2008 | 13:47
Dans í hugans rými - Ördansahátíð 2008
Ördansahátíð verður haldin í sjötta sinn laugardaginn 10. maí 2008
í Kaffivagninum úti á Granda og hefst hátíðin klukkan 15.00.
Hátíðin í ár er helguð dansverkum hugans og munu þau ekki eiga sér stað í efnislegu formi.
Um er að ræða dansverk sem eru lesin eða þeim lýst og munu því verkin aðeins finna sér form í rými hugans.
Hátíðin hefur frá upphafi verið helguð stuttum, staðsértækum dansverkum.
Ördansahátíð var fyrst haldin árið 2003 í íbúð og garði við Nýlendugötuna, árið eftir í listasamsteypunni Klink og Bank
þá í Góða hirðinum og svo á Tjarnarbakkanum.
Síðast átti hátíðin sér stað í tímrýminu á milli 15.00 og 15.03, laugardaginn 7. apríl 2007.
Allt sem átti sér stað í þessu tímarými, hvar sem var á jörðinni, var ördans.
Aldrei hefur þátttakan verið eins mikil þó allflestir flytjendur hafi verið ómeðvitaðir um þátttöku sína í
þessari fimmtu Ördansahátíð sem teygði anga sína yfir gjörvalla jörðina.
Í ár fer hátíðin hinsvegar ekki fram í efnislegu rými heldur í hugans rými, nánar tiltekið í hugum áheyrenda
og því má fullyrða að aldrei hafi sýningarrýmið verið jafn ótakmarkað og nú.
Tekið verður á móti tilkynningum um verk fyrir hátíðina
á olofingolfs@hive.is eða steinunn_knutsdottir@hotmail.com.
Lokafrestur til að melda sig er 7.maí.
Tilgreina skal titil verksins og flytjanda.
Ef þess er óskað geta hátíðarhaldarar (Ólöf og Steinunn) lesið verkin
og skulu þá lýsingar berast á word skjali í viðhengi.
Hámarkslengd verkanna er 1800 slög með bilum (uþb. 300 orð).
Flutningur verkanna:
- Höfundar dansverka geta flutt verkið sjálfir eða fengið aðra til þess.
- Höfundar geta lesið verkin á þann hátt sem þeir kjósa.
- Áhorfendur munu sitja við borð með sinn kaffibolla meðan á hátíðinni stendur.
- Uppröðun borða á Kaffivagninum verður eins og venjulega.
- ATH! verkin skulu ekki vera lengri en 300 orð.
Öllum lífslistamönnum er opin þáttaka á hátíðinni.
Nánari upplýsingar veita Ólöf Ingólfsdóttir í síma 8976140 eða Steinunn Knútsdóttir í síma 6640488
10.4.2008 | 10:06
DON'T HATE - PROCREATE
sviðslistahátíðina artFart 3 sem haldin verður í ágúst 2008.
Sviðlistahátíðin artFart 3 er vettvangur fyrir framúrstefnu og
tilraunamennsku í íslenskri sviðslist. Við leitum að listamönnum sem
hafa eitthvað að segja um samfélagið sem við lifum í og eru tilbúin að
vinna hörðum höndum að framþróun og nýsköpun í sinni list. Ekki er
unnt að veita umsækjendum þóknun í formi fjármagns en þeir listamenn
sem valdir verða fá sýningaraðstöðu og aðstoð við kynningu á verki í
formi auglýsinga, fjölmiðlaumfjöllunar o.s.frv. Valin verða nokkur
meginverk til að setja upp í völdum rýmum miðsvæðis í Reykjavík og enn
fleiri minni verk verða hluti af óhefðbundnari og frjálslegri dagskrá
sem skipulögð verður samhliða.
Í ár er leitað að eftirfarandi:
a) Fullunnum stærri verkum eða hugmyndum sem eru langt á veg komnar.
Þeim skal fylgja ýtarleg lýsing á hugmynd (konsepti), umfangi,
tímaramma vinnuferlis og fjárhagsáætlun. Ef þessar upplýsingar eru
ekki til staðar verður verkið ekki tekið til greina. Hvert verk skal
vera minnst 20 mínútur.
b) Styttri verkum, gjörningum, staðsértækum verkum (site specific),
spunaverkum, lifandi innsetningum (performance installation), o.s.frv.
Allar hugmyndir verða teknar til greina.
c) Fyrirlestrum, að vekja athygli á einhverju sem tengist list,
fræðslu um starfandi eða merkilega listamenn, umræðum um stöðu
sviðslistar á Íslandi, og fleira í þeim dúr. Allar hugmyndir verða
teknar til greina.
Umsóknum skal skila fyrir 17. apríl 2008 til: svidslist@gmail.com
10.4.2008 | 10:01
Gríman veitt föstudaginn 13. júní í Þjóðleikhúsinu
Sannkölluð rafspenna verður á Stóra sviði Þjóðleikhússins því aldrei hafa fleiri sýningar komið til álita til Grímunnar, en þær eru orðnar 75 talsins. Leikárið hefur verið fjölbreytt að vanda og aðsóknarmet hafa fallið enda aldrei fleiri áhorfendur sótt sýningar leikhúsanna.
Að lokinni verðlaunaafhendingu verður slegið upp dýrindis dansleik í Þjóðleikhússkjallaranum en Grímuballið hefur hingað til verið eitt heitasta sumarballið á mölinni.
Leikárinu lýkur síðasta vetrardag, þann 23. apríl. Tilnefningar verða opinberaðar um miðjan maí á fréttamannafundi í Þjóðleikhúsinu.
6.4.2008 | 17:54
Kulturkontakt Nords andra ansökningsrunda för år 2008!
Ansök nu:
- Modulen för mobilitetsstöd
- Modulen stöd till nätverk: Kortvarigt nätverksstöd
Ansökningsfristen inom båda modulerna är: 30 april 2008.
Se www.kknord.org för information om kriterier och behörighet.
Ansökningsblanketter, samt instruktioner för hur man ansöker, finns tillgängliga på http://applications.kknord.org/user . Ansökningstiden för tidsfristen är kl. 23.59 (CET).
Kulturkontakt Nord mottar endast ansökningar som sänds in via de elektroniska ansökningsblanketterna.
Ansökningarna behandlas av sakkunniga från Mobilitets- och residensprogrammet. Ansökarna meddelas om beviljningar och avslag cirka sju veckor efter ansökningsfrist.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 10:21
Tjarnarbíó lokað vegna framkvæmda
31.3.2008 | 11:34
Borko heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíó
Tónlistarmaðurinn Borko heldur útgáfutónleika í Tjarnarbíói á fimmtudaginn til að fylgja eftir sinni fyrstu breiðskífu, Celebrating Life. Platan kom út í byrjun mars og hefur fengið lofsamlegar umsagnir hjá gagnrýnendum.
Hún var sögð fyrsta íslenska snilldarplatan á árinu 2008" í Fréttablaðinu og í heild sinni hreinasta afbragð" í Morgunblaðinu.
Borko til halds og traust verður hljómsveit sem er skipuð þeim: Núma Þorkatli Thomassyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni, Róberti Sturlu Reynissyni, Örvari Þóreyjarsyni Smárasyni, Leifi Jónssyni og Ara Braga Kárasyni.
Húsið opnar klukkan 20:30 en tónleikarnir hefjast kl. 21 og hljómsveitin Seabear hitar upp. Miðaverð er 1200 krónur og forsala fer fram á midi.is.
27.3.2008 | 11:22
Nýr penni í nýju lýðveldi
Málþing um rithöfundinn Elías Mar
Laugardaginn 29. mars, klukkan 13.30 til 16.00 í Tjarnarbíói Útgáfufélagið Omdúrman stendur fyrir málþingi um Elías Mar laugardaginn 29. mars. Á þinginu verður rætt um rithöfundinn Elías Mar, skáldsögur hans og útgefanda; um æskulýðsmenningu í Reykjavík og íslenskt samfélag eins og það birtist í sögum Elíasar. Einnig verður rætt um hina leyndardómsfullu frásögn Þórðar Sigtryggssonar sem Elías skráði á árunum 1960 til 1965. Elías Mar (f 1924) lést í maí fyrir tæpu ári. Bækur hans hafa verið ófáanlegar um langt árabil og sjálfur leit hann svo á að hann væri gleymdur rithöfundur. En áhugi á verkum Elíasar hefur farið vaxandi undanfarin ár, enda eru þau skrifuð í deiglu hins nýja lýðveldis þegar nýtt samfélag verður til með nýtt tungutak, nýja stéttskiptingu, nýja tónlist, alþjóðlega æskulýðsmenningu, marglaga borgarsamfélag og hersetu. Þingið hefst með stuttri gönguferð um sögusvið skáldsagnanna Eftir örstuttan leik og Vögguvísa. Leiðsögumaður Hjálmar Sveinsson. Erindi: Dagný Kristjánsdóttir bókmenntafræðingur ræðir um skáldsöguna Eftir örstuttan leik, fyrstu skáldsögu Elíasar Marar. Eggert Þór Bernharðsson sagnfræðingur fjallar um æskulýðsmenningu í Reykjavík á árunum 1945 til 1955 Jón Karl Helgason bókmenntafræðingur ræðir um rithöfundinn Elías Mar og útgefanda hans Ragnar í Smára. Jón Karl les meðal annars brot úr sögu Ragnars sem hann er að skrifa Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur fjallar um prófarkalesarann Elías og um einnig um skáldsöguna Sóleyjarsögu Hjálmar Sveinsson útvarpsmaður og útgefandi fjallar um hina leyndardómsfullu sögu Þórðar Sigtryggssonar, síðasta stórverk Elíasar Marar.26.3.2008 | 16:45
Alþjóða leiklistardagurinn, 27di mars 2008
Ávarp frá Robert Lepage:
Það eru til margar kenningar um uppruna leikhússins, sú sem hefur ætíð heillað mig mest er dæmisaga.
Nótt eina, í upphafi daga, var hópur fólks saman kominn í hellisskúta, þar sem fólk yljaði sér við eld og sagði hvert öðru sögur. Þá var það að einhverjum datt í hug að standa á fætur og nota skugga sinn til þess að myndskreyta sögu sína. Með hjálp birtunnar frá eldinum, lét hann yfirnáttúrlegar persónur birtast á hellisveggjunum. Hinir voru yfir sig hrifnir, þegar birtust þeim hver á eftir öðrum; sá sterka og hinn veiki, kúgarinn og hinn kúgaði, Guð og dauðlegir menn.
Á okkar tímum hafa ljóskastarar komið í staðinn fyrir bálköst og sviðsmyndir í staðinn fyrir hellisveggi. Án þess ég vilji hnýta í hreinstefnumenn, minnir þessi saga okkur á að tæknin hefur frá fyrstu tíð verið ómissandi þáttur leikhússins. Tæknina má ekki sjá sem ógn, heldur einmitt tækifæri til þess að sameina krafta.
Framtíð leiklistarinnar er undir því komin að hún endurnýi sig stöðugt og tileinki sér ný verkfæri og ný tungumál. Hvernig á leikhúsið að geta haldið áfram að vitna um átakalínur samtímans og vera merkisberi mannlegrar samkenndar, ef það tileinkar sér ekki víðsýni? Hvernig getur leikhúsið státað af því að bjóða upp á lausnir við óumburðarlyndi, útilokun og kynþáttahyggju, nema það rugli sjálft reytum við nýja mótleikara?
Til þess að geta sýnt heiminn í allri sinni flóknu dýrð verður listamaðurinn að bjóða upp á ný form og nýjar hugmyndir og treysta dómgreind áhorfandans, sem kann að lesa skuggamyndir mannkyns í hinum endalausa leik ljóss og skugga.
Sá sem leikur sér að eldi getur brennst. En hann getur líka heillast og uppljómast.
Þýðandi: Guðrún Vilmundardóttir.
Róbert Lepage
Er kanadískur galdramaður í leikhúsi og undrabarn. Hann er jafnvígur sem leikstjóri í leikhúsi, leikari, sviðsmyndahönnuður og kvikmyndaleikstjóri. Frumleiki hans og sköpun hefur borið hróður hans víða um heim og er hann einn virtasti leikhúslistamaður heims um þessar mundir.
Hann fæddist í Quebec 1957 og eftir að hann gekk til liðs við leikhúsið hefur hann verið jafnvígur á að finna nýjar leiðir til að túlka samtímann sem og að brjóta klassísk verk leikbókmenntana til mergjar og færa fram kjarna þeirra á nýstárlegan hátt.
24.3.2008 | 10:06
Sýðasti sýningadagur Fjalakattarins
Í dag, mánudaginn 24. mars lýkur sýningum Fjalakattarins í Tjarnarbíó. Nánari upplýsingar og miðasala fer fram á heimasíðunni www.fjalakottur.is
Mánudagur, 24. mars
15.00 | Les Deux Anglaises et le Continent
17.30 | Le Dernier Métro
20.00 | Jules et Jim
22.00 | La Peau Douce
27.2.2008 | 01:21
Lókal í Tjarnarbíó
LÓKAL, alþjóðleg leiklistarhátíð sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi verður haldin dagana 5. 9. mars nk. Markmiðið með hátíðinni er að kynna Íslendingum samtímaleikhús frá Evrópu og Bandaríkjunum og tefla um leið fram nýjum verkum íslensks leikhúsfólks. Í fyrstu atrennu verður boðið upp á alls sjö leiksýningar.
Á sunnudeginum klukkan 22:00, sýna þau ERNA ÓMARSDÓTTIR og LIEVEN DOUSSELARE verkið The Talking Tree í Tjarnarbíó. Erna er einn fremsti og virtasti leikhúslistamaður Íslendinga, hefur farið víða um heim með sólóverkefni sín og hlotið frábæra dóma og viðtökur áhorfenda.
Áhorfendum er sérstaklega bent á að umræður verða eftir fyrstu sýningu á öllum verkum erlendu leikhópanna, með þátttöku þeirra. Einnig verða umræður eftir íslensku sýningarnar.