Íslenski Dansflokkurinn og Silesian Dance Theatre

Fimmtudaginn 21. okt kl. 20 verða tvær danssýningar sýndar í Tjarnarbíó: Singletrack eftir Jacek Luminski flutt af dönsurum ÍD og Colorblind eftir Sigríði Soffíu með dönsurum frá Silesian Dance Theatre.  Þessar sýningar eru hluti af Dance Bridge verkefni Silesian Dance Theatre Pólandi,  ÍD og SL á Íslandi og Samovarteateret Noregi.


Singletrack
List er líf, og lífið er fullt af list!

Verkið er falleg og nákvæm sýning með fimleika-ívafi, skipt niður í nokkrahluta sem taka á einstökum þáttum hins hversdagslega lífs. Líkaminn sem aðalskynfærið okkar og veraldleikin eru helstu þemu verksins en söguþráðurinn er fólgin í hinni lifandi heild sem endurskapast í hver skipti sem verkið er sett á svið.


Colorblind
Með tímanum áttaru þig á því að þó þú sért litblindur, þá er heimurinn í lit!

„Colorblind“ er saga um tilveruna og ástand okkar í heiminum. Pólskur gagnrýnandi sagði eftirfarandi um sýninguna: „Sýningin leiðir áhorfandan inn í heim þar táknmyndir mannlegs lífs taka á sig efnislega mynd. Frá myrkvuðu sviðinu berast raddir sem leiða okkur inn í hinn ímyndaða heim þar sem maðurinn tekst á við líf sitt í hvirfilvindi heimsins“.


Nánar um Dance Bridge verkefnið
Verkefnið er unnið  undir forystu Silesian Dance Theatre í samstarfi við Íslenska dansflokkinn, Sjálfstæða Leikhópa og Samovarteateret með styrkjum frá Íslandi, Liechtenstein og Noregi. Auk sýninga stendur hópurinn einnig að vinnusmiðjum og námskeiðum sem er mikilvægur hluti samstarfsins.  Aðal tilgangur Dance Bridge er samanbræðingur ólíkra menninga þar sem listamenn
með ólíkar fagurfræðilegar hugmyndir og reynslu koma saman.

Silesian Dance Theatre
Dansarinn og danshöfundurinn Jack Luminski stofnaði hópinn árið 1991 í Póllandi. Síðan þá hefur hópurinn, undir leiðsögn Luminski, skapað sinn eigin stíl og er nú leiðandi afl í nútímadansi og leikhúsi í Póllandi. Það skipuleggur og framleiðir sýningar bæði í heimalandi sínu og út um allan heim auk þess að vera hluti af margvíslegum listrænum verkefnum.

Miðasala er í Tjarnarbíó, tjarnarbio.is og midi.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband