Svikarin frumsýndur í Tjarnarbíó

Lab Loki frumsýnir Svikarann í Tjarnarbíó laugardaginn 19. febrúar.

Verkið er einleikur, fluttur af Árna Pétri Guðjónssyni, en Rúnar Guðbrandsson leikstýrir.

Þeir hafa í sameiningu unnið leikgerðina sem sækir innblástur m.a. til franska rithöfundarins Jean Genet og byggir einkum á leikverki hans Vinnukonunum (Les Bonnes).

Filippía Elísdóttir sér um útlit sýningarinnar og Garðar Borgþórsson hannar lýsingu og hljóðmynd.

Sýningar verða laugardaginn 19. febrúar, frumsýning.

                             föstudaginn.  25. febrúar.

                             laugardaginn 26. febrúar.

                             miðvikudag.    2. mars.

                             laugardaginn.  5. mars, - síðasta sýning                                                     

Svikarinn er í senn harmrænt verk og spaugilegt, fullt af reiði og grimmd, freníum, fóbíum og frústrasjónum, - góðlátlegu gríni og ekki sérlega góðlátlegu.

Óvægin árás og miskunnarlaus einlægni.                                                   

Þetta er glíma leikarans við hlutverkið, - og glíma þeirra beggja við sjálfan sig.

Engillinn glímir við djöfulinn, dýrlingurinn við glæpamanninn.

Þetta er pólýfónískur kór hins margklofna persónuleika.

Kakófónía örvæntingarinnar og kyrrlátt eintal einsetumannsins.

Draumur fangans. Kynórar ónanistans. Játningar iðrandi syndara.

Rödd hrópandans í eyðimörkinni. Hinsta andvarp píslavottarins.

Þetta er þjófurinn í skriftastólnum og skemmtikrafturinn í skerandi sviðsljósinu.

Skrípamynd og altaristafla.

Neonlýsing almenningssalernisins og ofbirta hreinsunareldsins.

Í óreiðunni allri er leikarinn sjálfur þungamiðja og útgangspunktur; sá sem leikur og sá sem leikið er á, sá sem kúgar og er kúgaður, sá sem svíkur og er svikinn.

Genet voru “svikin” ofarlega í huga og sem leikritahöfundur vildi hann svíkja leikarann, - nú er stund hefndarinnar runnin upp og leikarinn fær tækifæri til að svíkja Genet, - hlutverkið að svíkja höfund sinn, - tilgangurinn helgar meðalið og til þess að ná markmiðum sínum stelur leikarinn því sem honum sýnist frá þjófnum Jean Genet 

Hér má sjá myndir frá æfingu á Svikaranum

Einnig má sjá efni á facebook síðu Lab Loka


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband